Aðalfundur Íslenska-Norska Félagsins í Suður-Rogalandi og Ryfylke verður haldinn föstudaginn 15. mars 2019, kl. 20:00 í Fagforbundets Hus, Bakergate 15 -4015 Stavanger.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf
- Skýrsla formanns fyrir árið 2018
- Bókhald fyrir árið 2018.
- Nýtt ársgjald. Fyrir liggur tillaga frá stjórn um nýtt ársgjald.
- Kosningar: Kjósa á gjaldkera og varafomann til 2 ára og stjórnarmeðlimi, varamenn, endurskoðendur og kjörstjórn til eins árs. Núverandi formaður biðst lausnar og kjósa verður því nýjan formann til eins árs.
Á aðalfundinum verður boðið upp á léttar veitingar. Fólk getur tekið með sér drykkjarföng. Engin sala á drykkjum verður á staðnum.
Við vonum að sem flestir sjái sér fært um að koma og vera með á aðalfundinum.
Stjórnin